Spádómur Jesaja Amozsonar 740-695 fyrir Krist. ( Jesaja 11:1-5) 

Af stofni Ísaí mun kvistur fram spretta og angi upp vaxa af rótum hans.  Yfir honum mun hvíla andi Drottins: Andi vísdóms og skilnings, andi ráðspeki og kraftar, andi þekkingar og ótta Drottins.

Unun hans mun vera að óttast Drottin. Hann mun ekki dæma eftir því, sem augu hans sjá, og ekki skera úr málum eftir því, sem eyru hans heyra.

Með réttvísi mun hann dæma hina fátæku og skera með réttlæti úr málum hinna nauðstöddu í landinu. Hann mun ljósta ofbeldismanninn með sprota munns síns og deyða hinn óguðlega með anda vara sinna.

Réttlæti mun vera beltið um lendar hans og trúfesti beltið um mjaðmir hans.

Spádómur Jesaja Amozsonar 740-695 fyrir Krist. ( Jesaja 11:1-5)

Jesús er af ætt Ísaí eins og ættartölur hans sýna.( Matteus 1)