Jesús svaraði: “Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi, hefðu þjónar mínir barist, svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.” Þá segir Pílatus við hann: “Þú ert þá konungur?”

Jesús svaraði: “Rétt segir þú. Ég er konungur.  Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn, að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum, heyrir mína rödd.”