Guð er uppspretta lífsins og sá sem gaf mönnunum að vera lifandi sál í lifandi líkama. Það er því ráðist gegn kærleikseðli hans og vilja, þegar menn deyða það andlega og líkamlega líf sem Guð hefur sjálfur gefið. Jesús sagði: Óvinurinn kemur til að stela slátra og eyða en ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð. Guð vill að mennirnir höndli lífið sjálft og það að eilífu.