Sumir hafa álitið að þetta boðorð eigi einungis við um það þegar menn láta út úr sér nafn Guðs í neikvæðni t.d. sem blótsyrði, en að nefna nafn Guð við hégóma er líka að kenna hann við illvirki. Að framkvæma illvirki eða eitthvað sem er gegn eðli Guðs, kærleikans sjálfs og segjast gera það í hans nafni hryggir Guð og er alvarlegt. Fjölmörg dæmi eru um slíkt í sögu mannsins þegar menn stela, myrða, ljúga og brjóta boð Guðs og segjast gera það í nafni Guðs, nægir að nefna til að mynda mörg verk Krossfarana. En kærleiksboð Guðs eru skýr og þau voru opinberuð í fullkomleika sínum í lífi Jesú Krist. Ef menn misnota nafn Drottins þá er það grenilega í hans óþökk.