Hinn eini sanni Guð er kærleikurinn sjálfur og hann elskaði okkur að fyrra bragði og lykillinn að því að lifa í sönnum kærleika er að vera tengdur honum,þess vegna er þetta fyrsta kærleiksboðorðið. Ritninginn segir; Guð er kærleikur, og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum. Til þess að vera stöðugur í kærleikanum þá er nauðsynlegt að hafa hann í fyrirrúmi og gefa honum fullt rými í hjartanu. Þetta boðorð er grundvöllur allra annara kærleiksboða vegna þess að Guð vill ekki að við villumst af leið því það er í samfélaginu við Kærleikann sjálfan sem við höfum aðgang að þeirri takmarkalausri kærleiksuppsprettu sem við þörnumst til að elska náunga okkar í öllum kringumstæðum.